Jæja, nú hefur liðið vika milli færslna eða eitthvað. Það er bölvuð leti í mér og það veit ég vel. Samviskubitið hefur verið að naga mig, það er bara eins og það er. Alltaf þegar það líður svona langur tími á milli líður mér eins og krakka sem hefur gert eitthvað af sér og það að blogga aftur er eins og að fara upp að foreldrum sínum og viðurkenna að hafa brotið lampann.
En hvað með það, ég braut lampann. Sorry með mig.
Dagarnir hafa orðið betri og betri held ég að sé best að nota til að lýsa dögunum síðan að ég bloggaði siðast. Skólinn gengur vel, er nokkurnveginn með allt á hreinu og hef ekkert skrópað eða sofið yfir mig. Internet high-five fyrir það.
Á þriðjdaginn byrjaði ég svo í víkingaþreki hjá Mjölni. Ég gerði ekki mikið enda fyrsti tíminn en fjandinn, 50-60 hnébeygjur einungis með eigin þyngd gera það að verkum að ég hef labbað eins og John Wayne síðan þá. Þegar ég kom út fannst mér eins og fæturnir á mér væru úr Jell-O, ég hélt ekki balans og gat varla stigið á kúplinguna á bílnum. Það er alltaf jafn einstaklega leiðinlegt að byrja aftur og átta sig á hversu slæmu formi maður er í, sérstaklega miðað við að maður var í frekar góðu formi fyrir nokkrum mánuðum. Eða hálfu ári, en hvað er það milli vina?
En einhverstaðar verður maður að byrja. Yoga gengur einnig fínt, virkilega slakandi og gefandi. Gellan er mjög spes en skemmtileg, talaði í gær mjög mikið um að kúka nóg. Við fáum víst einhvern bækling í maili bráðum sem kennir okkur að kúka á morgnana. Það er allt í gangi þarna.
Ég hef borðað mikið af eggjum og beikoni, gríðarlega mikið. Hef verið að henda rækjum inn í mixið líka og spínati. Þetta er svona mín uppáhalds máltíð þessa dagana. Þ.e. í hádegismat til dæmis. Á kvöldin reyni ég að borða kjöt og hrísgrjón/kartöflur.

Vers’egú. Tók eitt stykki mynd með því að halda á tölvunni minni og nota photobooth. Ég þarf virkilega á smartphone að halda..
Fór á myndina Help í gær. Hún er um þeldökkar þjónustustúlkur í Jackson Mississippi á tímum mikillar skiptingar og ójafnréttis. Hún er löng en frekar góð. Ég var eigininlega brjálaður allan tímann yfir því hvernig sumir í þessari mynd létu og höguðu sér. Fjandinn hvað það gerði mig reiðann. En, sem betur fer lifum við ekki á tímum svona heimsku lengur, eða það vona ég ekki. Þrátt fyrir að það séu einhverjir þöngulhausar eftir.
Ég hafði hugsað um þessa færslu í langann tíma og hvað ég ætlaði að segja mikið merkilegt. Ég veit ekki hvort ég hafi náð því markmiði en þá kem ég bara með aðra færslu fyrr þegar ég man eitthvað.
Btw, ég sá internet staðreynd áðan sem fullyrti að 1 af hverjum 5 konum sem búa með manninum sínum eiga fleiri en 1 “sexual partner”? Þessa rannsókn vil ég sjá. Hún hlýtur að hafa verið gerð um sumar á Ibiza.
Namaste kæru vinir. Namaste.
Verður frekar epísk, ég pósta samt engum myndum. Ég er að heilsteikja kjúkling inní ofni, með mikið af salti (það var einhver paleo uppskrift sem mælti með þessu svona) en það er auðvitað sjávarsalt. Svo smá íslensk piripiri og hvítlauks olía. Henti líka smá kryddblöndu á þetta líka. Sjáum til hvað setur, þetta er inn í ofninum í þessum töluðu. En ég hlakka mikið til enda geigvænlega svangur.
Annað sem mig langaði til að benda á. Ég er að fara að borða þetta með einhverju grænmeti og einnig Bulgur, miðausturlanda mat sem ég hef verið að kynna mér. Smakkað einu sinni og líkað mjög vel. Ég googlaði þetta þessvegna þar sem ég er nokkuð viss um að þetta er kannski ekki 100% paleo, ég vil samt meina að þetta komist fjárans nálægt því en voru menn að éta þetta fyrir einhverjum 4-5000 árum. Þessi linkur segir margt held ég. http://www.livestrong.com/article/347648-why-is-bulgur-wheat-healthy/
Þetta virðist vera meinhollt dót, það líkar mér.
Annars er dagurinn orðinn aðeins betri og ég ætla að fara og taka slökun. Klára hana fyrir daginn enda hef ég verið á miklum nálum í allan dag og yfirspenntur, svo verð ég líka svo gígantískt pirraður þegar ég er svangur. Tók líka netpróf í skólanum í dag, fékk 10. Það er allt á uppleið.
Þessir 2 fyrstu dagar, eru að reynast mér þrautin þyngri. Í raun líður mér svona ákkúrat núna í baráttu minni við sykur, hveiti og skyndibitaþörf.

Ég viðurkenni fúslega að ég gerði mér þetta heldur ekkert auðvelt fyrir. Ég undirbjó mig lítið eða svona, vann mig ekkert smám saman frá alls kyns hlutum sem ég neita mér nú um. Ég vaknaði bara í gær og boom, cold turkey.
Það hjálpar samt mjög að vera með annan aðila með sér í þessu, sérstaklega þegar hinn aðilinn gaf manni safapressu í afmælisgjöf sem er að koma sér fáránlega vel ákkúrat núna. Því hér sit ég í vinnunni, með hálfan líter af epla, mangó, ananas, sellerí, agúrku og spínat smoothie sem ég gerði í gær til að hafa með mér í dag. Einnig skál af hunangsmelónu, vatnsmelónu og eplum. Ég hef samt ekki hugmynd um hvað ég fæ mér í hádegismat eða kvöldmat ef því er að skipta.
Ég er með hausverk, ég er eitthvað frekar grillaður í hálsinum, semi stíflað nef og illt í augunum. Ég svaf alls ekki vel. Ég veit ekki hvort það hafi verið af því að ég hafi verið svo svangur en ég held samt ekki. Ég borðaði svo sem ekkert gígantískt magn af mat í gær en fínan mat engu að síður. Egg og beikon í síðbúinn morgunmat með smoothie og melónum í eftirrétt. Svo lambakjöt með rótargrænmeti og hindberjasósu í kvöldmat. Ef þið viljið fá myndir myndi ég hoppa yfir til Svönu á http://svanhildurg.tumblr.com/ hún er mun duglegri en ég í einhverju myndastússi. Sérstaklega þar sem ég á ekki iPhone ennþá. Það myndi gera þetta mun einfaldara. (HINT HINT ma&pa..)
Ég viðurkenni fúslega að ég á í mestum erfileikum með naslið, hvað kemur í stað fyrir kex, súkkulaði eða eitthvað slíkt þegar þú mátt ekki borða sykur eða hveiti? Nei ég bara spyr!

Engu að síður þá berst ég áfram, það var við þessu að búast hugsa ég. Þetta verður örugglega ekki verra en þetta. Í raun er þetta frekar skuggalega áminning á það hversu háður ég hef orðið bara tökum sem dæmi Maryland kexi, sem ég hefði kyrkt höfrung fyrir í morgun. En fall er fararheill, það er bara eins og það er. Ég vona einfaldlega að ég nái að rísa upp jafn skjótt og þessi maður hér. Þá ætti ég að vera í tudda góðum málum.

Matur og æfingar:
- 80-90% Paleo. Mun borða hrísgrjón (þó helst annaðhvort tyrknesku grjónin Bulgur (http://www.amazon.com/Arisa-Medium-Traditional-Buglur-Wheat/dp/B000KUROMM) eða brún hrísgrjón), kartöflur, hafragraut.
- Fylgja Total Transformation eftir Robb Wolf í sem mestum details. (http://robbwolf.com/2011/10/06/new-robb-wolfs-30-day-total-transformation-interactive-ebook-guide/)
- Vera í Yoga með Magga 2-3x í viku.
- Vera í Víkingaþreki í Mjölni 2-3x í viku.
- Fótbolti með Mjöðminni og svo Aroni og co. á Sunnudags og Þriðjudagskvöldum optional.
- Ekkert áfengi.
- Reyna að borða amk 3 góðar máltíðir á dag.
Önnur Markmið:
- Fara að uppí rúm fyrir miðnætti, án tölvu.
- Hætta í tölvunni á miðnætti í síðasta lagi. (Það verður að vera miðnætti þar sem flestir skilafrestir í náminu hjá mér renna út á miðnætti og stundum vinn ég þangað til.)
- Lesa bókina The Road Less Travelled. Hugsanlega í x langann tíma á dag.
- Gera slökun 1 sinni á dag.
- Halda betra bókhald yfir fjárhaginn og hvað ég eyði.
- Eyða meiri tíma með Vöku, litlu dóttur hans Unna og sætustu frænku í heiminum.
- Reyna að peppa einhvern hvern einasta dag. Hringja meira og tékka á stöðunni á mönnum og fólki.
- Leyfa mér að chilla á sunnudögum og má þá spila mest playstation.
- Gera allt leiðinlegt og erfitt fyrst, það skemmtilega síðan.
- Skila öllum verkefnum í skólanum og mæta í alla tíma sem ég megna.
- Hugsanlega láta mér vaxa skegg. Það er enn á umræðustigi.
Það gerir mig klikkaðann að a) kunna ekki að setja inn myndbönd inn í venjulega færslur hérna og b) að þurfa að gera einhverjar sérstakar “vidjó” færslur til að myndböndin sjáist en þá get ég ekki gert fyrirsögn á það sem ég skrifa. Erfileikar þess að blogga eru óstöðvandi.
Ég hef ekki bloggað í svo langann tíma að ég hef fengið samviskubitið og keypt bolinn og gleymt síðan samviskubitinu út á snúru. Ég fékk fullkomlega leið á þessu, aðallega held ég af því að ég var að blogga um einhverja æfingar og dót sem ég svona hafði semi gaman af því að tala um en samt ekki. Fólki held ég fannst ekkert gaman að lesa það allavega. Nema örfáum og þá tala ég hvort sem er við reglulega.
Ég er núna einni viku frá því að komast í páskafrí, þá fer ég til Íslands einungis til þess að læra aðeins meira. Svo mánuði eftir að ég kem aftur hingað út þá vona ég nú að ég verði kominn á þann stað að ég geti klárað. Það er samt gjörsamlega geðsjúkt að gera og ég veit ekkert hvernig ég á að fara að þessu en það verður bara að gerast. Ef ég þarf að sleppa því að sofa einhverja daga þá bara so be it.
Ég er mikið á bókasöfnum þessa dagana. Eða ekki mörgum, bara einu í raun. Þar sit ég venjulega á quite zone þar sem ég hef frið til að lesa og læra. En það er ótrúlegt hvað þögn gerir mann pirraðann, í þögn pirra mig hlutir sem gera það aldrei þess fyrir utan. Það var kona hérna að bryðja brjóstsykur (hún gerði það samt í svona 10 mín) áðan og það var að gera mig dýrvitlausann. Hún situr beint fyrir aftan mig og það heyrðist ekkert nema þetta random “crunch” hljóð þegar hún beit niður. Ég var að klikkast, ég sver það.
Ég ætla samt að reyna að byrja aftur á þessu. Aðallega af því að ég hef frá svo mörgu skemmtilegu að segja og tala um. Jafnvel þótt það sé bara við sjálfan mig. Þetta virkar smá eins og þerapía, og þið eruð sálfræðingurinn. Hver ÞIÐ í raun eruð hef ég ekki hugmynd um, enda held ég að ÞIÐ séuð hugsanlega bara mamma mín og 1-2 vinir en high five til himins á ykkur 3!
Lagið sem ég hef verið að hlusta mikið á þessa dagana er þetta hérna:
http://www.youtube.com/watch?v=9gPstH_bYFk
Ég elska youtube comment. Þeir sem sjá sig knúinn til að commenta á myndbönd eru meira og minna snillingar.
“WoW……
Try listen this song…. after u just ligh a spliff….”Til hamingju skakki netmaður.
Já, það hefur ekki verið bloggað lengi. Það eitt er víst.
Eftir að platan var tilbúin og Gunnar kominn í heimsókn fóru hlutirnir meira að snúast um að hafa það gott og í raun gera ekki neitt. Þá er mjög erfitt að skrifa eitthvað og láta menn vita hvernig staðan er, bloggfærslur sem snúast um mig uppí rúmi að borða M&M fúnkera ekki, eða það vil ég ekki meina.
Síðan þá hafa jólin komið og farið og hér sit ég 11. jan að reyna að koma lífi mínu á hreint og ákveða hvernig ég mun hafa þessa síðustu önn mína í skólanum. Ég er rólega að komast í form, byrjaður í Combat Gym í ármúlanum og fór í fyrsta tímann í gær, það var fínt stuff og fjandinn sem ég var nánast búinn að kasta upp þarna á einu tímabili. Jólin hafa dregið úr manni orku og þrek það eitt er víst. Svo er það fótboltaæfing með KF Mjöðm í kvöld sem verður hrikalega skemmtilegt held ég, mjög langt síðan ég hef spilað fótbolta.
Fyrir þá sem hafa áhuga þá situr svo EP platan mín hér og bíður eftir hlustun. Það hefur gengið fínt og ég á einhver hard copy eintök eftir hérna heima, það er bara fyrstur kemur fyrstur fær (svo lengi sem hann er með monní til að borga mér svo ég geti haldið áfram að lifa kóngalífi út í Liverpool….)
http://www.gogoyoko.com/#/album/The_James_Down_EP
Jólin voru hrikalega góð, alltaf gaman að hitta alla félaga og vini aftur og Ísland er alltaf gamla góða Ísland, dýrt, frekar kalt og mikið um rall. Rallpressan hér er mun meiri heldur en nokkursstaðar í heiminum held ég. Hún hefur allavega verið það um jólin. Julefrokost var góður en undarlegur, hugsanlega aggressívur en sumir segja að einhver neikvæð orka hafi verið í gangi þar, sel það ekki dýrara en ég keypti. Svo hafa hver boðin komið hvert á eftir öðru og satt besta segja man ég varla eftir neinu þeirra. Hugsanlegt ofmat en allavega nenni ég ekki að fara útlista hér í einhverjum löngum lista hvað í fjandanum gekk þar á þar sem það var einfaldlega of mikið. Þið hefðuð bara átt að vera þar.
Nú eru allir semi farnir og einungis rannsóknarvinna og ritgerðarvinna sem tekur við. Það er svo sem fínt, ég þarf að koma lífi mínu á hreint eftir þessa törn.
Þessi póstur er bara byrjun á nýju ári. Ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja en ég hef verið með samviskubit yfir því að skíta á mig frá því í desember. Við getum kallað þetta mánaðarfrí, nú dettur allt á fullt aftur svona þegar ég sjálfur dett á fullt líka.
Btw, Klovn er mjög fyndin. En líka bara ef þið viljið láta ganga fullkomlega fram af ykkur.
Hér sit/ligg ég uppí rúmi að reyna að skrifa upp verkefnið mitt, EP plötuna sem kemur núna út á miðvikudaginn og mun heita “The James Down EP”.
Ég er að bíða eftir að góðvinur minn og almennur mannvinur Gunnar Skúlason mæti hérna á lestarstöðina frá Manchesterborg þar sem hann var að koma frá Köben til að heimsækja mig í 5 daga eða svo. Það mætti segja að þessvegna sé ég að reyna að rumpa sem mestri vinnu af, svo ég geti einbeitt mér af því að hafa gaman með honum. (Ákkúrat núna var ég að ýta báðum hnefunum á mér að hvorum öðrum og ég sver að það brakaði í öllum 10 puttum, það er ótrúlegt (innskot blaðamanns.))
Hérna er gripurinn:

Annars hef ég lítið bloggað eða sett hérna inn þar sem líf mitt er eins áhugavert og svampur þessa dagana. Ég ralla ekki, læri eiginlega bara (sem ég er komið með fullkomið ógeð á), fer ekki í jiu jitsu útaf olnboganum á mér og í raun fer bara út úr húsi þegar ég fer í kettlebells 3 í viku. Ég verð samt að segja að það heldur mér frá því að verða geðveikur og einnig er að setja mig í frekar gott form verð ég að segja. Ég get varla labbað framhjá spegli án þess að klæða mig allavega smá úr.
Á eftir ætla ég að elda smá sunday roast handa Gunnari. Kjúlla, ofnsteiktar kartölur og brún sósa. Hugsanlega að ég fari aðeins út í búð áður og geri líka eitt dót sem er vinsælt hérna úti og mjög gott en ég man ekki hvað það heitir, einhverskonar stuffing nema bara eldað í ofni og þú hendir þessu bara með. Smá eins og borða bragðgóða mold. Skemmtilegt.
En þetta verður gaman og svo ennþá meira gaman þegar ég kem heim eftir rúma 8 daga, þá mun Ísland fara á flug.
Peace and luv litlu vinir.
